
Laugavegshlaupið er 55 kílómetra langt utanvegahlaup sem haldið verður í 27. sinn þann 15. júlí 2023.
Nýtt skráningarfyrirkomulag fyrir hlaupið árið 2023 er að þörf er á 370 ITRA stigum til að geta skráð sig í hlaupið. Skráningin í hlaupið opnar 3. nóvember og Frekari upplýsingar um nýtt skráningarfyrirkomulag má finna hér.
Hlaupið er fyrir mjög vana hlaupara 18 ára og eldri en enginn ætti að skrá sig fyrr en búið er að kynna sér vel skilyrði fyrir þátttöku.
Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands, tvær náttúruperlur. Staðsetningin gerir það að verkum að Laugavegurinn er einungis þjónustaður í nokkrar vikur á ári.
Í hugum margra hlaupara er Laugavegshlaupið skemmtilegasta hlaupið á Íslandi. Á þessari krefjandi leið verða hlauparar vitni að ótrúlegri náttúrufegurð. Göngugarpar eru venjulega 4 daga á leið sinni um Laugaveginn. Undirlendið er fjölbreytt þar sem hlaupið er á sandi og möl, í grasi og snjó, á ís, yfir ár og læki.