Skipulag

Mjög mikilvægt er að allir þátttakendur kynni sér vel skipulag Laugavegshlaupsins. Upplýsingarnar um skipulag eru fyrst og fremst ætlaðar til þess að auka öryggi þátttakenda enda mikilvægt fyrir skipuleggjendur hlaupsins og starfsmenn þess að geta gengið út frá því að þátttakendur viti hvers eðlis Laugavegshlaupið er.

Aðstaða og skipulag í Landmannalaugum fyrir hlaup

Flestir þátttakendur hlaupsins koma í Landmannalaugar með rútum hlaupsins. Þeir hafa meðferðis farangur sinn sem fluttur verður áfram í Þórsmörk. Við komu í Landmannalaugar þurfa þátttakendur að sameina farangur í eina rútu samkvæmt leiðbeiningum frá starfsmönnum hlaupsins. Sjá nánar um farangur hér.

Áður en gengið er frá farangri þarf að taka mið af síðustu veðurupplýsingum og tilmælum frá hlaupstjóra um klæðnað.
Salernisaðstaða er í Landmannalaugum í húsi á vegum Ferðafélags Íslands og í aðfluttum WC gámi á vegum hlaupsins. Engin önnur aðstaða er innandyra fyrir hlaupara.

Þátttakendur eru ræstir af stað með fimm sekúndna millibili og þurfa að vera tilbúnir á tilsettum tíma fyrir talningu í þann ráshóp sem þeim hefur verið úthlutað. Sjá dagskrá hér.

Næring og umbúðir

Þó að drykkjarstöðvar séu á leiðinni er nauðsynlegt að hver og einn hafi meðferðis sitt eigið drykkjarglas og drykkjarbrúsa í hvaða veðri sem er. Vegna umhverfissjónarmiða er hlaupurum skylt að vera með sitt eigið drykkjarmál eða brúsa. Ekki verður hægt að fá pappaglös á drykkjarstöðvum. Á drykkjarstöðvum eru starfsmenn sem hella drykkjum í glösin eða brúsa fyrir hlaupara ef þeir óska eftir því.

Auk þess er mikilvægt að hafa meðferðis orkugel eða aðra næringu. Sérstök áhersla er lögð á að engu rusli sé hent á leiðinni, hvorki gelbréfum, bananahýðum, glösum, plastumbúðum né neinu öðru. Hlaupurum er skylt að taka með sér allt rusl og henda því á drykkjarstöðvum eða á marksvæði. Því miður hefur rusl orðið eftir á leiðinni og varðandi gelbréfin þá hefur reynslan sýnt að þau eru stundum að detta úr beltum hlaupara og eftir notkun hafa hlauparar einnig lent í því að þau hafa fokið úr höndum þeirra. Því eru hér vinsamleg tilmæli um að þátttakendur hætti alfarið að nota gelbréf en setji næringuna frekar í plastbrúsa sem hægt er að hafa t.d. í brúsabelti. Reynslan sýnir að þetta er einnig gott næringarlega séð. Í stað þess að innbyrða heilt gelbréf er betra að fá sé einn og einn sopa úr flösku.

Njótum leiðarinnar og stöndum saman um það að skilja ekki eftir okkur neikvæð ummerki og koma ekki óorði á Laugavegshlaupara. Upplýsingar um hvaða næringu er boðið uppá á leiðinni má finna hér.

Að hætta á miðri leið

Laugvegshlaup er 55 km og því er gengið út frá því að þátttakendur hafi þjálfað sig fyrir þá vegalengd og með skráningu skuldbinda þeir sig til að fara alla leið. Það er ekki í boði að hætta við á leiðinni nema viðkomandi sé veikur eða slasaður eða hafi ekki komið innan þeirra tímamarka sem reglur segja til um í Álftavatn eða Emstrur, þá þarf viðkomandi að hætta. Að flytja þátttakendur með bíl á milli skála er tímafrekt og eingöngu hugsað sem neyðaraðstoð. Þau sem neyðast til þess að hætta á miðri leið verða að gefa sig fram við einn af starfsmönnum hlaupsins. Þetta er mjög mikilvægt því annars getum við átt á hættu að einhver sé álitinn týndur og því viljum við fyrir alla muni komast hjá.

Veður

Meðalhiti í júlí á Laugaveginum er áætlaður um 7-8°C. Veðrið er ekki hægt að skipuleggja og þarf að gera ráð fyrir að brugðið geti til beggja vona með hitastig og veðurskilyrði. Af fenginni reynslu af veðri í Laugavegshlaupi er mikilvægt að vera vel búinn og fara eftir fyrirmælum hlaupstjóra varðandi klæðnað. Á 55 km leið í kulda og bleytu getur kæling orðið lífshættuleg.

Útbúnaður

Fatnaður fer eftir því hvernig viðrar þegar hlaupið fer fram. Allir þátttakendur þurfa að vera viðbúnir því við upphafi hlaups að klæðast eða taka með sér auka fatnað í hlaupið, verði þess krafist af hlaupstjóra. Sjá nánar um nauðsynlegan útbúnað hér

Tímatakmörk

Tímatakmörk eru sett með öryggi hlauparans í huga. Í Laugavegshlaupinu er miðað við að hlauparar geti klárað 55 km á innan við 9:15 klukkutímum sem gefa 370 ITRA stig. Eftir þann tíma er starfsmönnum hlaupsins heimilt að taka saman allan búnað á marksvæði. Tímatakmörkin í hlaupinu eru miðuð við að hlauparar fari út af drykkjarstöð við Álftavatn (22 km) á innan við 4 klukkustundum og út af drykkjarstöð í Emstrum (38 km) á innan við 6:30 klukkustundir. Þeir hlauparar sem ná ekki þessum tímatakmörkum þurfa að hætta í hlaupinu. Þessi regla á við um alla þátttakendur og er ekki hægt að semja við starfsmenn á staðnum um aðra kosti. Sjá nánar hér.

Húsadalur eftir hlaup

Að hlaupinu loknu er allur farangur hlaupara væntanlega kominn í Húsadal. Þar er honum komið fyrir í aðskildum tjöldum fyrir konur og karla. Þar er hægt að fara í sturtu og vonandi heitan pott. Við þorum ekki að lofa hitastiginu á vatninu sem getur verið breytilegt. Það er samt þess virði að hafa sundföt meðferðis og léttar töflur/inniskó til að ganga í að sturtuaðstöðu. Húsaskjól og tjöld eru til staðar og hægt að kaupa heitan mat.

Í Húsadal er mikið um að vera og þangað eru allir velkomnir. Þar er rekin ferðaþjónusta alla daga yfir sumarið og þátttakendur og starfsmenn í Laugavegshlaupi eru viðbót við aðra gesti. Á vegum hlaupsins eru settar upp tjaldbúðir með borðum og stólum auk annarra tækja en allt er þetta kostnaðarsöm þjónusta og hluti af þeirri umgjörð sem tilheyrir hlaupinu.

ATH: Hlauparar eru beðnir að taka tillit til þess að aðstaðan í tjaldbúðunum er eingöngu ætluð þátttakendum í hlaupinu en ekki ættingjum og vinum og þetta á einnig við um þann mat sem er innifalinn í þátttökugjaldi hlaupsins. Þau sem vilja borða með vinum og ættingjum geta gert það í húsinu Dalsel þar sem staðarhaldari er með veitingasölu.

Rútur hlaupsins fara frá Þórsmörk á tímabilinu kl. 18-20. Þau sem eiga pantað far með rútunni sýna armbandið sitt við innganginn. Fyrsta rúta fer um leið og hún fyllist, svo næsta og næsta rúta en síðasta rúta fer kl.20.

Hægt er að kaupa gistingu í Húsadal hjá Volcano Huts fyrir þá sem vilja staldra lengur við í ægifagurri Þórsmörkinni. Sjá nánar á volcanohuts.com.

Áhorfendur klappa fyrir hlaupara sem kemur í mark í Húsadal

Samstarfsaðilar

  • Reykjavik Excursions
  • 66 Norður
  • Suzuki
  • Volcano Huts
  • Ferðafélag Íslands
  • ITRA member
  • Gatorade