Skráning í Laugavegshlaupið 2023 sem fer fram laugardaginn 15. júlí, hefst fimmtudaginn 3. nóvember 2022 kl. 12:00 og verður opin í viku, eða til hádegis fimmtudagsins 10. nóvember.
Ekki þarf að skrá sig inná mínar síður til þess að geta skráð sig í hlaupið. Hnappur mun birtast á nokkrum stöðum á heimasíðunni og efst í hægra horninu á forsíðunni þegar skráning opnar.
Þessi síða er í vinnslu
* ÍBR tekur 11.550 kr umsýslugjald við vinnslu umsóknar sem kemst inn í hlaupið, þetta er hluti af skráningargjaldinu.
Innifalið í þátttökugjaldi
- Peysa frá 66°norður
- Brautar- og öryggisgæsla
- Drykkir á drykkjarstöðvum í Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Emstrum, Ljósá, Þröngá og í Húsadal
- Salernisaðstaða í Hrauneyjum, Landmannalaugum, Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Emstrum og Húsadal
- Flutningur á farangri í Bláfjallakvísl og í Húsadal
- Þátttökuverðlaun, sigurverðlaun, aldursflokkaverðlaun, sveitaverðlaun
- Sturtuaðstaða í Húsadal ásamt húsaskjóli í tjaldbúðum hlaupsins til að matast og hafa fataskipti
- Læknir og hjúkrunarfólk ef á þarf að halda í Húsadal
- Tímataka og númer
- Upplýsingar
- Flutningur til byggða fyrir þá sem ekki ná tímamörkum
Ekki innifalið í þátttökugjaldi
Rútuferðir frá Reykjavík í Landmannalaugar og til Reykjavíkur frá Þórsmörk, morgunverður í Hrauneyjum og heit máltíð að hlaupi loknu er ekki innifalin í þátttökugjaldinu. Tekið verður á móti pöntunum fyrir þessa þjónustu frá þeim sem vilja á „Mínar síður" frá 1. febrúar til 1. júlí. Sjá nánar um rútuferðir hér og mat hér.
Skilmálar
Við skráningu í hlaup á vegum Íþróttabandalags Reykjavíkur þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.
Skráning í hlaupið
Skráning er opin 3.-10. nóvember 2022 fyrir hlaupið sem fer fram 15. júlí 2023. Sjá frekari upplýsingar hér.
Ekki þarf að skrá sig inná mínar síður til þess að geta skráð sig í hlaupið. Hnappur mun birtast á nokkrum stöðum á heimasíðunni og efst í hægra horninu á forsíðunni þegar skráning opnar. Hægt verður að greiða fyrir mat í gegnum skráningarkerfið okkur og hægt að breyta því til 1. júlí.
Greiðslufyrirkomulag
Í skráningarferlinu er hægt að velja um að greiða þátttökugjaldið með öllum helstu tegundum af greiðslukortum og/eða gjafabréfi. Að lokinni skráningu fær viðkomandi sendan tölvupóst skráningunni til staðfestingar. Berist ekki póstur hefur skráning ekki gengið í gegn.
Afskráning og endurgreiðsla
Hægt er að fá þátttökugjaldið endurgreitt að hluta ef beiðni berst í tölvupósti á netfangið info@marathon.is innan neðangreinds tíma.
- Fyrir 31. desember - þú færð 75% endurgreiðslu
- Fyrir 1. mars - þú færð 50% endurgreiðslu
Biðlisti
Þær umsóknir sem fá EKKI úthlutað skráningu fara sjálfkrafa á biðlista og ræður slembitala sem umsóknin fékk í upphafi því hvar á biðlista umsókn lendir. Þannig lendir sú umsókn sem hefur lægstu slembitöluna fremst á biðlista. Áætlað er að hlauparar fá tilkynningu um niðurstöðu umsóknar föstudaginn 17. nóvember 2022. Hægt verður að fylgjast með biðlistanum á heimasíðunni. Ekki verður tekið inn af biðlista eftir 1. mars.