Takk fyrir samstarfið
Við viljum þakka samstarfsaðilum okkar í Laugavegshlaupinu fyrir frábært samstarf og stuðning. Með ykkar aðkomu er mögulegt að halda þetta stóra og skemmtilega hlaup ár hvert.
Samstarfið skiptir miklu máli og við kunnum vel að meta það.

66 Norður
66°Norður er íslenskt fyrirtæki sem hannar, framleiðir og selur föt. Fötin eru sniðin á börn, konur og menn og henta fyrir alla útiveru. Fyrirtækið hefur unnið mörg hönnunarverðlaun fyrir vörur sínar, svo sem Scandinavian Outdoor Awards.
Finndu þér glæsileg hlaupaföt frá 66 Norður fyrir sumarið hér.
Notaðu kóðann - ibr66 til að fá 20% afslátt af vörum.

Reykjavíkurborg
Við erum afar þakklát Reykjavíkurborg fyrir öflugt samstarf sem gerir okkur kleift að halda Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Stuðningur borgarinnar er lykilforsenda þess að hægt sé að bjóða upp á öruggan, metnaðarfullan og líflegan viðburð sem setur svip sinn á Reykjavík á hverju ári.

Teya
Markmið Teya er að einfalda fyrirtækjum dagleg störf. Við vinnum statt og stöðugt að því að byggja vörur og tengingar sem eru auðveldar í notkun og gera meðlimum okkar kleift að taka við greiðslum og auka afkomu fyrirtækja sinna. Við erum meðlimum okkar ávalt innan handar, svo þú getir einbeitt þér að því sem mestu máli skiptir, daglegum rekstri.
Á árinu mun Teya kynna nýjar vörur til leiks sem munu meðal annars gefa fyrirtækjum greiðari aðgang að fjármagni á sanngjörnu og viðráðanlegu verði sem og gera þeim kleift að hafa yfirsýn yfir reksturinn í gegnum Teya appið hvar og hvenær sem er.

Reykjavík Excursions
Reykjavik Excursions (Kynnisferðir) var stofnað árið 1968 og fagnaði 50 ára afmæli sínu árið 2018. Fyrirtækið, sem er með fullgild ferðaskrifstofu- og fararstjóraleyfi, hefur á síðustu fimm áratugum vaxið og dafnað og er nú eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Það býður upp á fjölbreytt úrval gæðaferða og þjónustu fyrir einstaklinga og hópa.


















