Laugavegshlaupið var haldið í 30. sinn laugardaginn 11. júlí. Aðstæður á leiðinni voru almennt mjög góðar. Smávægilegur mótvindur gerði vart við sig og hlýnaði þegar nær dró marki. Nokkrir hlauparar sögðu að víða hefði verið nokkuð heitt á lokakaflanum, en veðrið var engu að síður afar hagstætt til hlaupa.
Yfir 700 hlauparar lögðu af stað frá Landmannalaugum klukkan 9 um morguninn og hlupu hina krefjandi leið yfir Laugaveginn með endamark í Húsadal í Þórsmörk. Þar tóku fjölmargir áhorfendur á móti þeim og fögnuðu glæsilegum árangri keppenda.
Leikar fóru þannig að Tove Alexandersson frá Svíþjóð sigraði í kvennaflokki og setti brautarmet í kvennaflokki á tímanum - 04:14:08 Hreint útsagt frábær árangur. En þetta var hennar fyrsti Laugarvegur. Í öðru sæti í kvennaflokki var svo Íris Anna Skúldaóttir á tímanum 04:57:38. og á eftir henni í þriðja sæti var Helga Bergsdóttir á tímanum 05:02:35.
Í karlaflokki sigraði Þorsteinn Roy Jóhannson þriðja árið í röð á tímanum 04:06:35, heldur betur frábær árangur hjá honum. Í öðru sæti var svo Bretinn Andrew Douglas á tímanum 04:12:57 og í þriðja sæti var svo Stefán Pálsson á tímanum 04:17:22.
Verðlaunafhending var svo klukkan 17:30 í Húsadal, en þar voru veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í kvenna og karlaflokki, sem og aldursflokkaverðlaun.
Íþróttabandalag Reykjavíkur þakkar þátttakendum, starfsfólki, hinu frábæra teymi sem sá um beina útsendingu, sjálfboðaliðum, áhorfendum og öllum þeim sem komu að því halda þetta frábæra hlaup.
Takk fyrir okkur og sjáumst að ári liðnu.



Ljósmyndir: Bjarni Baldursson.
















