Þrjátíu ár á fegurstu hlaupaleið landsins
Laugavegshlaupið, eitt þekktasta og mest krefjandi utanvegahlaup Íslands, verður haldið í 30. sinn laugardaginn 17. júlí 2027. Þá verða liðin 30 ár frá því að fyrstu hlaupararnir lögðu af stað frá Landmannalaugum árið 1997 og af því tilefni verður afmælishlaupið í ár sannkölluð hátíð hlaupara og allra sem hafa gert Laugaveginn að því sem hann er í dag.
Frá fámennum hópi að heimsþekktu hlaupi
Laugavegurinn er 55 kílómetra leið um friðlöndin að Fjallabaki og í Þórsmörk. Göngufólk fer hana yfirleitt á þremur til fjórum dögum, en hlauparar leggja hana að baki á einum degi, frá litríkum líparítfjöllum og jarðhita Landmannalauga, upp í hrafntinnu og snjóskafla við Hrafntinnusker, framhjá Álftavatni, yfir jökulár og svartar sandauðnir Emstra og loks niður í græna skóga Þórsmerkur.
Þegar hlaupið var haldið í fyrsta sinn árið 1997 var það fámennur hópur ævintýragjarnra hlaupara sem lagði í hann. Síðan hefur hróður Laugavegsins borist um allan heim. Aðsóknin er gríðarleg ár hvert og langt umfram þau sæti sem í boði eru, og á ráslínunni í Landmannalaugum standa hlauparar hvaðanæva úr heiminum hlið við hlið.
Á þessum 30 árum hafa verið skrifaðir margir eftirminnilegir kaflar. Árið 2015 varð Þorbergur Ingi Jónsson fyrstur til að hlaupa leiðina undir fjórum klukkustundum, á 3:59:13, og stendur það brautarmet enn. Í kvennaflokki setti Tove Alexandersson frá Svíþjóð nýtt brautarmet í fyrra, 4:14:08. En sögu Laugavegshlaupsins skrifa ekki síður þeir þúsundir hlaupara sem hafa komið í mark í Húsadal, blautir, þreyttir og sigri hrósandi.
Afmælisár – hátíð í Þórsmörk
Á afmælisárinu viljum við þakka hlaupurunum, sjálfboðaliðunum og samstarfsaðilum okkar sem hafa borið hlaupið uppi í þrjá áratugi, og gera 30. hlaupið að því eftirminnilegasta hingað til,“ segir í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Skráning og 370 ITRA-stig
Laugavegshlaupið er krefjandi fjallahlaup og er eingöngu ætlað vel undirbúnum hlaupurum, 18 ára og eldri. Til að geta skráð sig þurfa hlauparar að hafa að lágmarki 370 ITRA-stig (ITRA Performance Index), sem byggist á árangri í viðurkenndum utanvegahlaupum síðustu þrjú ár. Til viðmiðunar fær hlaupari sem lýkur Laugavegshlaupinu á um 9 klukkustundum og 30 mínútum um 370 stig, og þeir sem hafa áður lokið hlaupinu innan tímamarka eru með að minnsta kosti 370 stig.
Laugavegshlaupið er aðili að ITRA (International Trail Running Association) og er jafnframt eitt þeirra hlaupa sem nýta má sem úrtökuhlaup fyrir Ultra-Trail du Mont-Blanc (UTMB).
Helstu dagsetningar:
● 11. nóvember kl. 12:00 – skráning opnar á laugavegshlaup.is
● 18. Nóvember á miðnætti – skráningu lýkur
● 25. Nóvember kl.12:00 – tilkynnt hverjir fá sæti
● Laugardagur 17. júlí 2027 – 30. Laugavegshlaupið ræst í Landmannalaugum
Hlauparar eru hvattir til að kanna ITRA-stigin sín vel áður en skráning opnar og skrá þau rétt inn í skráningarkerfið.
Um Laugavegshlaupið
Laugavegshlaupið er 55 km utanvegahlaup frá Landmannalaugum í Þórsmörk og hefur verið haldið árlega frá árinu 1997. Leiðin liggur um sand, möl, gras, snjó og ís og yfir ár og læki. Hlaupið er haldið af ÍBR (Íþróttabandalagi Reykjavíkur).
Skráning fer fram hér.
















