Hlaupið hefur verið fastur liður í lífi fjölskyldunnar í áraraðir. Höskuldur stefnir á sitt 26. Laugavegshlaup, dóttir hans, Anna Kristín, á sitt tíunda og barnabarn hans, Tyler, sitt sjötta þegar hlaupið fer fram í 30. sinn sumarið 2027.
Það er ekki sjálfgefið að þrír ættliðir sömu fjölskyldu stefni saman á eitt erfiðasta utanvegahlaup landsins. Fyrir Höskuld og fjölskyldu hans er Laugavegurinn þó orðinn hluti af fjölskylduhefðinni. Nú stefna þau öll þrjú á að standa saman á ráslínunni í 30 ára afmælishlaupi Laugavegshlaupsins sumarið 2027.
„Kannski voru þetta bara örlögin eða tilviljun,“ segir Anna Kristín, dóttir Höskulds, sem hefur tvisvar áður hlaupið Laugaveginn með föður sínum og Tyler, barnabarni Höskulds, árin 2020 og 2025.
Höskuldur hefur hlaupið Laugaveginn í mörg ár og fjölskyldan hefur smám saman bæst í hópinn. Árið 2025 voru Höskuldur og Tyler ákveðnir í að taka þátt og þá ákvað Anna Kristín ásamt bróður sínum, Jóni, að þau yrðu að vera með líka. Það ár var Höskuldur 75 ára gamall og sýndi enn og aftur að aldurinn þarf ekki að vera fyrirstaða. Þrátt fyrir að hafa verið tæpur á tímatakmörkum árin 2023 og 2024 kom hann í mark hálftíma fyrr en bæði árin þar á undan.
Árið 2026 var hins vegar öðruvísi. Anna Kristín tók þátt ein úr fjölskyldunni. Tyler hafði gleymt að skrá sig og ákvað þess í stað að einbeita sér að öðrum utanvegahlaupum. Höskuldur hafði skráð sig í sex daga hlaup í Svíþjóð skömmu eftir Laugaveginn og vildi beina kröftunum að því verkefni. Eftir að hafa tekið þátt í Laugavegshlaupinu 20 ár í röð var kannski ekki úr vegi að taka sér ársfrí.
Það var þó hægara sagt en gert.
„Það má segja að Höskuldur hafi verið orðinn ansi spenntur fyrir því að komast aftur á Laugaveginn enda mætti hann í dalinn til að taka á móti mér og var þá þegar búinn að ákveða að hann yrði með árið 2027! Tyler var líka ákveðinn í að vera með og gleymdi ekki að skrá sig,“ segir Anna Kristín og hlær.
Nú er stefnan því sett á 30 ára afmælishlaupið. Höskuldur stefnir á sitt 26. Laugavegshlaup, Anna Kristín á það tíunda og Tyler á sitt sjötta. Tyler hefur auk þess sett sér það markmið að komast undir sex klukkustundir.
Hlaupaáhuginn gengur á milli kynslóða
Hreyfing og útivera hafa alltaf verið stór hluti af fjölskyldulífinu og þar hefur Höskuldur verið mikilvæg fyrirmynd. Hann hefur í gegnum tíðina verið duglegur að taka börnin og barnabörnin með sér í skokk, langar göngur, fjallgöngur og götuhlaup.
„Við Tyler höfum ásamt öðrum í fjölskyldunni smitast af utanvegahlaupaveirunni þökk sé honum. Það er náttúrulega ótrúlegur lúxus fyrir okkur að hafa aðgang að manni með svona mikla reynslu. Hann hefur kennt okkur mikið í gegnum árin og gefið góð ráð. Ég held meira að segja að hann eigi allar bækur sem hafa verið skrifaðar um hlaup, utanvegahlaup og langhlaup.“
Undirbúningurinn fyrir 2027 er þegar farinn að taka á sig mynd. Höskuldur hyggst líklega skrá sig á Laugavegsnámskeið hjá Náttúruhlaupum, þar sem hann hefur áður æft. Anna Kristín íhugar að gera slíkt hið sama en Tyler æfir á eigin vegum.
Þótt þau æfi ekki alltaf saman fylgjast þau vel með hvort öðru, ræða æfingarnar og bera saman bækur sínar. Strava kemur þar auðvitað við sögu.
„Það er mikil hvatning í því að vita af öðrum sem eru að æfa fyrir sama markmið og nenna að tala um sama áhugamál. Þá er hægt að pæla í ólíkum geltegundum, íþróttadrykkjum, hlaupaskóm og öllu því sem fylgir langhlaupum.“
Reynsla Höskulds nýtist hinum tveimur vel, hvort sem kemur að æfingamagni, leiðinni sjálfri, búnaði eða næringu. Sú þekking verður áfram mikilvægur hluti af undirbúningnum fyrir næsta sumar.
Hvert með sitt markmið – saman í mark
Þau segja enga sérstaka ástæðu til að ætla að eitt þeirra þurfi meiri hvatningu en annað. Öll hafi þau sín eigin markmið og sína leið að þeim, en stuðningurinn innan fjölskyldunnar sé mikilvægur.
Þótt þau stefni saman á ráslínuna er ekki ætlunin að hlaupa alla leiðina saman. Hvert og eitt mun takast á við sína áskorun og hlaupa sitt eigið hlaup. Vonin er þó sú að þau geti sameinast í markinu og fagnað árangrinum saman.
„Það er mögnuð tilfinning að standa á ráslínunni eftir allan undirbúninginn og enn betri tilfinning þegar maður kemur svo í mark. Að sjá ástvini sína líka ná sínum markmiðum er ótrúlega skemmtilegt og ómetanlegt að fá að upplifa og fagna saman.“
Skráning í Laugavegshlaupið 2027, sem verður haldið í 31. sinn, er opin til miðnættis miðvikudaginn 18. nóvember. Þátttakendur fá tilkynningu þann 25. nóvember um hvort þeir hafi fengið sæti í hlaupinu.
















