Að skráningu lokinni eignast hver einstaklingur sitt svæði undir heitinu: „Mínar síður“ en það er svæði hlauparans þar sem hægt er að framkvæma eftirfarandi aðgerðir:
- Breyta persónuupplýsingum
- Skrá í sveitakeppni
- Prenta út kvittun
- Bóka rútuferð og mat (opnar í lok júní)
- Prenta út viðurkenningarskjal
Til þess að fara inn á „Mínar síður" þarf notandanafn og lykilorð sem sent var með tölvupósti að lokinni skráningu í hlaupið. Ef þig vantar þessar upplýsingar er hægt að fá þær sendar með tölvupósti með því að smella á hnappinn „Gleymt lykilorð". Einnig er hægt að fá lykilorð sent með því að senda nafn og kennitölu á [email protected]