Fullbókað er nú í Laugavegshlaupið 2021 og hefur skráningu því verið lokað. Að þessu sinni seldist upp í hlaupið á mettíma, en mikið álag varð á síðunni þegar opnaði fyrir skráninguna.
Þegar mest var voru yfir 1.200 manns að reyna að skrá sig á sama tíma og berjast um mun færri sæti en það.
Það gefur því auga leið að fjöldi manns komst ekki í gegn og náði ekki að skrá sig.
Ekki verður boðið uppá skráningu á biðlista. Fyrirkomulagið er þannig að yfirbókað er í hlaupið því vitað er samkvæmt reynslu síðustu ára að hluti af skráðum þátttakendum þarf að hætta við og er gert ráð fyrir því bæði í verðinu og skipulaginu. Þeim sem ekki náðu að skrá sig í ár er bent á að Laugavegshlaupið 2022 fer fram laugardaginn 16. júlí og hefst skráning í janúar 2022.
Í júní fá skráðir þátttakendur boð um að panta sæti í rútu hlaupsins, morgunmat og heitan mat á marksvæði. Þegar nær dregur hlaupi verða einnig sendar upplýsingar um ástand hlaupaleiðarinnar, veðurspá o.fl. Allur póstur er sendur frá netfanginu [email protected]. Mælt er með því að setja það netfang inn sem tengilið svo að mikilvægar upplýsingar fari í ekki í ruslpóstsíur.