Skráning viðbótarupplýsinga

15. júní 2018

Laugavegshlaupið 2023 nálgast óðfluga og nú er aðeins um mánuður til stefnu. Við vonum að undirbúningur hlaupara gangi vel og allir séu um það bil að verða klárir í slaginn.

Allir hlauparar þurfa nú að fara inn á „mínar síður“ á marathon.is og skrá viðbótarupplýsingar. Um er að ræða skráningu á áætluðum lokatíma og ósk um að vera í ráshóp með ákveðnum hlaupafélögum. Á sama stað er hægt að panta sæti í rútu hlaupsinsmorgunmat í Hrauneyjum og heitan mat í Þórsmörk ef fólk vill.

Notendanafn hlaupara á „mínum síðum“ er kennitalan og lykilorðið var sent til þeirra í tölvupósti við skráningu í hlaupið. Smellt er á „i“ merkið undir aðgerðir til að komast á viðbótarupplýsingasíðuna. Hér er hægt að sækja nýtt lykilorð ef það er týnt. Athugið að ef nýtt lykilorð berst ekki gæti það verið í rusl póst hólfi, það ratar því miður stundum þangað.

Dagana fram að hlaupi fá hlauparar nánari upplýsingar um veður, færð o.fl. og eru því beðnir að fylgjast vel með tölvupóstinum sínum. Allir upplýsingapóstar um hlaupið eru sendir frá info@marathon.is og því gott að setja það netfang sem tengilið í pósthólfinu. 

*Uppfært 3. maí 2023*

Laugavegshlaupari í fallegu umhverfi

Samstarfsaðilar

  • Reykjavik Excursions
  • 66 Norður
  • Suzuki
  • Volcano Huts
  • Ferðafélag Íslands
  • ITRA member
  • Gatorade